Myndband af Alexandríu Ocasio-Cortez, yngstu konunni til að taka sæti í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, sem bandarískir hægrimenn dreifðu á samfélagsmiðlum til að gera lítið úr henni virðist hafa haft þveröfug áhrif. Netverjar hafa þvert á móti lofað þingkonuna sem ferskan blæ á þingi.
Ocasio-Cortez er 29 ára gömul og þykir vinstrisinnuð á bandarískan mælikvarða. Þannig styður hún til dæmis opinbera heilbrigðisþjónustu fyrir alla landsmenn. Öllum að óvörum felldi hún reyndan þingmann demókrata í forvali flokksins í New York síðasta sumar. Hún náði svo kjöri á Bandaríkjaþing í kosningunum í byrjun nóvember.
Nánar á
http://www.visir.is/g/2019190109593