Skýrsla og ályktanir í henni sem Rósa Björk Brynjólfsdóttir, varaforseti Evrópuráðsþingsins og þingmaður VG, vann fyrir Evrópuráðsþingið voru samþykktar einróma á þingi Evrópuráðsins í Strassborg sem lauk í gær.
Skýrslan fjallar um að stöðva ofbeldi gegn börnum á flótta og fylgdarlausum börnum og í tilmælum skýrslunnar eru lagðar til breytingar á lögum aðildaríkja Evrópuráðsins til að koma enn frekar í veg fyrir ofbeldi og illri meðferð gagnvart börnum á flótta og til að veita þeim aukin réttindi.
Meðal þess er að börn fái alltaf opinberan fylgdarmann af hálfu yfirvalda. Að heildræn nálgun verði notuð við aldursgreiningar á börnum sem leita eftir alþjóðlegri vernd ( ekki bara tann – eða beinagreiningar ) og að aðildaríki skuli skapa örugg og lögleg úrræði fyrir börn á flótta. Stuðla skuli að því að sameina fjölskyldur og stækka flóttamannakvóta. Þá skuli börn ávallt fá upplýsingar um málefni sín á þann barnvænan hátt og að börn fái ávallt að tjá skoðun sína við stjórnvöld í málum sem varða þau.
Einnig eru tilmæli í skýrslunni til stjórnvalda um marka pólitíska stefnumörkun í þágu hagsmuna barna, þar á meðal um frávísun flóttabarna og aukin framlög á fjárlögum til málaflokksins, börnum til heilla.
Helmingur barna á flótta hverfa úr móttökumiðstöðvum og flóttamannabúðum.
Í skýrslu Rósu Bjarkar kemur fram að Evrópuráðsþingið lýsir þungum áhyggjum af stöðu fylgdarlausra barna í Evrópu.
Helmingur barna sem koma fylgdarlaus til Evrópu hverfur af móttökumiðstöðvum innan tveggja sólarhringa og oft er ekkert vitað hvar þau eru eða lenda. Allt of oft eru þau fórnarlömb mansals, þrælkunar og kynferðisofbeldis og lenda í klóm skipulags mansals eða glæpagengja.
Með tilmælunum er verið að tryggja aðbúnað og réttindi barna og að koma í veg fyrir að börnum sé rænt og þau seld í mansal, kynlífsþrælkun eða beitt kynferðisofbeldi. Eða að þau séu beitt harðræði í móttökumiðstöðum eða flóttamannabúðum eins og raunin hefur verið m.a. í Ungverjalandi, á Spáni og í fleiri aðildarríkjum og er staðan sérstaklega slæm á Ítalíu hvað varðar aðbúnað fylgdarlausra barna á flótta og meira en 75% barna á flótta á aldrinum 14-17 sem komu til Ítalíu 2017 sögðust vera í haldi einhvers eða neydd til að vinna.
Mexíkó bað um aðstoð Evrópuráðsins
Í umræðum um skýrslu Rósu Bjarkar ávarpaði sendiherra Mexíkó þingfundinn sem sérstakur gestur og ákallaði Evrópuráðsþingið við að leysa neyðarástandið sem er á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. Koma þurfi í veg fyrir að börn lendi í mansali og verði fórnarlömb kynferðisofbeldis og koma þarf í veg fyrir að börn séu í varðhaldi eins og hefur verið gert.
„Þetta eru gríðalega mikilvæg tilmæli og það var mikill samhugur um ályktanir skýrslunnar á þinginu“ segir Rósa Björk „ Engin greiddi atkvæði gegn henni sem er sjaldgæft. Nú þurfa öll aðildaríki að standa saman gegn ofbeldi og illri meðferð börnum á flótta. Líka Ísland,\"