Tillögur um rannsóknir felldar

Tillögur fulltrúa minnihlutans á borgarstjórnarfundi í gær var ýmist vísað frá eða felldar en þær fjölluðu um rannsóknir á framkvæmdum sem hafa ýmist farið fram úr kostnaðaráætlunum eða verið vafasamar hvað varðar vinnuvernd.

Tillaga borgarfulltrúa Miðflokksins um óháða rannsókn á framúrkeyrslu við endurbætur á Hlemmi Mathöll var vísað frá á borgarstjórnarfundi í gærkvöldi.

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, starfandi borgarstjóri, lagði til að tillögunni yrði vísað frá í ljósi þess að innri endurskoðun borgarinnar væri að vinna að úttekt á innkaupum og útboðum á nokkrum verkefnum og Hlemmur Mathöll væri meðal þeirra. Morgunblaðið segir frá í dag.

Þá felldi meirihlutinn tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um að lækka fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði úr 1,65 í 1,60 prósent, þegar á næsta ári. Katrín Atladóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins flutti tillöguna og sagði það vonbrigði að tillagan hefði verið felld enda hefði málið verið eitt af aðalstefnumálum Viðreisnar í vor. Borgarfulltrúar Viðreisnar greiddu atkvæði gegn tillögunni og nefndu að samstarfsyfirlýsingin geri ráð fyrir að skatturinn lækki seinna eða í lok kjörtímabilsins.

Í frétt Morgunblaðsins er nefnt að Sjálfstæðismenn hafi vakið athygli á því að samkvæmt nýju fasteignamati hækki atvinnuhúsnæði um 16,6 prósent á næsta ári. Það leiði til hundraða milljóna króna aukaskattheimtu á heimili og fyrirtæki. Of seint sé að lækka álagningarprósentuna í lok kjörtímabilsins.

 Einnig lögðu Sjálfstæðismenn til að fram færi óháð rannsókn á samningum og framkvæmd við Grensásveg 12 með tilliti til samþykkta borgarinnar um félagsleg undirboð og annað sem lýtur að aðstæðum starfsfólks verksala, eins og segir í blaðinu en meirihluti borgarfulltrúa felldi tillöguna. Húsnæðinu er verið að breyta úr atvinnuhúsnæði í íbúðarhúsnæði og hefur Reykjavíkurborg gert samning um kaup á allmörgum félagslegum íbúðum í því.

Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins vöktu athygli á því að oft hafi verið brotið á starfsfólki sem var látið rífa niður asbest án leyfis og Vinnueftirlitið þurft að stöðva framkvæmdir. Staðhæft hafi verið að borgin hafi skyldur í þessu máli sem verkaupi en ekki gengist við því þrátt fyrir stefnu sína í mannréttindamálum.