Tillögur gegn ofnotkun geð-og verkjalyfja

Starfshóp sem falið var að gera tillögur um aðgerðir til að stemma stigu við mis- og ofnotkun geð- og verkjalyfja skilaði heilbrigðisráðherra í dag skýrslu með tillögum sínum. 

Í skýrslunni er fjallað um misnotkun lyfseðilsskyldra lyfja sem víða er vaxandi vandamál, líkt og Eftirlitsmiðstöð Evrópusambandsins um misnotkun lyfja (EMCDDA) hefur m.a. fjallað um í nýlegri skýrslu.

Þetta á helst við um svefnlyf, róandi og kvíðastillandi lyf, ópíóíð, sterk verkjalyf og lyf notuð sem viðhaldsmeðferð við ópíóíðafíkn og örvandi lyf gegn ADHD. Íslendingar skera sig úr varðandi mikla notkun, auk þunglyndislyfja. Árið 2016 notuðu Íslendingar nærri 30% meira af tauga- og geðlyfjum en Svíar sem koma næstir Íslendingum í samanburði milli Norðurlandaþjóðanna.

Í skýrslu EMCDDA kemur fram að stóran hluta mikillar misnotkunar framangreindra lyfja megi rekja til slæmra ávísunarvenja lækna.

Starfshópurinn segir í skýrslu sinni til ráðherra að ástæður mikillar lyfjanotkunar hér á landi séu margþættar. Skapast hafi væntingar og menning sem líti á lyf sem lausn margra vandamála og samhliða miklu magni af ávanabindandi lyfjum í umferð aukist hætta á of- og misnotkun. Tillögur hópsins miðast fyrst og fremst að því að takmarka magn ávanabindandi lyfja í umferð og styðja góðar ávísunarvenjur lækna en einnig að því að efla eftirlit og upplýsinga til almennings.

Tillögur starfshópsins eru í níu liðum:

  • takmarka aðgang að ávanabindandi lyfjum,
  • auka fræðslu bæði hjá fagstéttum og almenningi,
  • herða eftirlit með ávísanavenjum lækna,
  • gera kröfur um bætta greiningu á ADHD
  • bæta aðgang að öðrum úrræðum en lyfjum við meðferð á ADHD, svefnvanda, kvíðaröskunum og langvinnum verkjum.

Nánar má lesa innihald skýrslunnar hér.

Formaður starfshópsins var Birgir Jakobsson, fyrrverandi landlæknir og nú aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra. Aðrir fulltrúar voru; Aðalsteinn Jens Loftsson, lyfjafræðingur hjá Lyfju, Áslaug Einarsdóttir, settur skrifstofustjóri í velferðarráðuneytinu, Einar Magnússon, lyfjamálastjóri í velferðarráðuneytinu, Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar, Sigurður Örn Hektorsson, yfirlæknir fíknigeðdeildar Landspítala, Valgerður Rúnarsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga SÁÁ, Þröstur Emilsson, framkvæmdastjóri ADHD-samtakanna og Þórgunnur Ársælsdóttir yfirlæknir, formaður Geðlæknafélags Íslands.