Rex Tillerson utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir að fyrirhugaður fundur Donalds Trumps með Kim Jong Un leiðtoga Norður Kóreu verði viðræðufundur, ekki samningaviðræður.
Þjóðaröryggisráðgjafi Suður-Kóreu, Chung Eui-yong tilkynnti óvænt um viðræðurnar í gærkvöldi. Í tilkynningu forsetans kom fram að Trump hefði þegið bréflegt boð Kims Jung Uns um fund og að hann yrði haldinn ekki síðar en í maí.
Tillerson sagði í samtölum við fréttamenn í Djibouti þar sem hann er staddur að Trump hefði í nokkurn tíma sagt að hann væri opinn fyrir viðræðum og myndi vilja hitta Kim ef kringumstæður væru réttar. Tillerson sagði: „Ég held að forsetinn hafi metið það svo að nú væri rétti tími kominn“ og að Kim hafi breytt afstöðu sinni á það afgerandi hátt að forsetinn hafi nú talið rétt að hitta Kim. Tillerson sagði jafnframt að þetta hefði verið ákvörðun Trumps sjálfs og að hann reiknaði með að nú færi í hönd nokkurra vikna undirbúningur. „Nú er þetta spurning um að ná saman um tímasetningu á þeirra fyrstat fundi,“ sagði Tillerson.