Rex Tillerson, sem Donald Trump rak úr embætti utanríkisráðherra Bandaríkjanna í gær, segir ástæðu til að vara sterklega við Rússum. Tillerson sagði í yfirlýsingu í gær, að hegðun þeirra og aðgerðir á alþjóðavettvangi yllu áhyggjum, og núverandi stefna þeirra myndi eingöngu einangra þá enn meir í samfélagi þjóðanna.
Tillerson virtist áberandi hrærður og andstuttur í kveðjuávarpinu, að því er segir í frétt BBC. Eftir því var tekið að hann hvorki þakkaði Trump né lofaði stefnu hans. Uppsögnin í gær var hranaleg, tilkynningin um hana kom á Twittersíðu forsetans.
Mike Pompeo yfirmaður CIA kemur í stað Tillersons sem utanríkisráðherra og í stað Pompeos kemur Gina Haspel, fyrsta konan í toppstöðu CIA.