Tillaga Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, borgarfulltrúa Sósíalistaflokksins, um matarbanka var felld í borgarstjórn Reykjavíkur í dag. Tólf greiddu atkvæði gegn tillögunni, þrír með henni og átta greiddu ekki atkvæði.
„Til þess að enginn í borginni þurfi að búa við svengd og bjargarleysi er lagt til að Reykjavíkurborg komi upp matarbanka fyrir þá sem eru í þörf fyrir mat. Staða margra er oft þannig að þeir eru í þörf fyrir mat vegna fátæktar, atvinnuleysis, tímabundinna erfiðleika eða annarar stöðu sem gerir það að verkum að viðkomandi á ekki fyrir mat. Þrátt fyrir að hjálparstofnanir veiti mataraðstoð, þá er þörfin mikil og aðstoð þeirra dugar ekki alltaf til,“ sagði í tillögunni sem var lögð fram í dag.
Sanna segir nauðsynlegt að bregðast við stöðunni og tryggja að enginn í borginni sé án matar. Lagði hún það til að velferðarsviði yrði falið að setja upp matarbankann og leita ráðgjafar eða samstarfs hjá félagasamtökum sem hafa reynslu af umræddu málefni.
„Æskilegt er að matarbankarnir verði á fleiri en einum stað í borginni svo að borgarbúar þurfi ekki að ferðast langar vegalengdir til að nálgast matinn og að þeir verði í nálægð við samgöngumiðstöðvar. Lögð er áhersla á að í matarbankanum sé fjölbreytt, næringarríkt fæði sem þjóni mismunandi þörfum. Áhersla verði á að einstaklingar geti sjálfir valið í matinn, eftir því sem er í boði. Í matarbankanum verði einnig nauðsynjavörur til heimilishalds líkt og klósettpappír, hreinlætisvörur til einkanota, bleyjur og dósaopnarar sem einstaklingar geti tekið með sér.“
Í greinargerð með tillögunni segir að tekjur allra ættu að duga fyrir því að lifa mannsæmandi lífi út mánuðinn, alla mánuði ársins. „En staðan í samfélaginu okkar er því miður ekki sú. Sem afleiðing upplifa margir sig í þeirri stöðu að vera matarlausir og án bjargar. Hjálparstofnanir hafa aðstoðað marga í gegnum tíðina með matargjöfum og gjafakortum í matvöruverslanir og matargjafir hafa einnig átt sér stað í gegnum samskiptamiðla, þar sem einstaklingar hjálpa öðrum í neyð. Þrátt fyrir það, þá dugar slíkt ekki til, þar sem þörfin er mikil og nauðsynlegt er að bregðast við þeirri þörf. Því er lagt til að Reykjavíkurborg komi upp aðstöðu til þess.“
Tillagan var þó sem fyrr segir felld.