Tilkoma costco eykur samkeppni

Tilkoma alþjóðlegu verslanakeðjunnar Costco inn á íslenskan neytendavörumarkað á næsta ári gæti haft meiri áhrif á sölu og verð á öðrum vörum en matvörum.
 
Þetta segir Finnur Árnason, forstjóri Haga, sem reka bæði Bónus og Hagkaup, en hann var gestur Páls Magnússonar á Þjóðbraut í gærkvöld Finnur nefnir til sögunnar vöruflokka á borð við hjólbarða og raftæki í þessu samhengi.
 
Finnur segir að Bónus verði áfram rekið í sama húsi og Costco opnar sína verslun í. \"Við spilum okkar leik\", segir Finnur í þættinum.
 
Nálgast má þáttinn í heild sinni eða í klippum á hringbraut.is.