Tilboð sigmundar sem ekki var hægt að hafna - aftur?

Nú er komið í ljós að einstaklingar sem fengu skuldalækkun í boði Framsóknar njóta hennar ekki. Í það minnsta segja dæmin okkur að fólk er verr statt en áður. Framsókn vann stórsigur í síðustu kosningum vegna þessa máls. “Þetta var tilboð sem maður gat ekki hafnað”,, segir einn maður mér. Núna hafa vaxtabætur á móti aldrei verið lægri. Hver borgar?

Ung tveggja barna móðir er komin að þeirri niðurstöðu að það sé í raun hún sjálf sem borgi niðurfellinguna. Hvað eru þetta annað en kosningasvik? Sigmundur Davíð Gunnlaugsson talar eins og hann sé ennþá forsætisráðherra þessa dagana. Jú, skuldaniðurfellingin var á hans vakt. Og nýjasta nýtt er að hann gælir núna við að færa öryrkjum og öldruðum tekjuleiðréttingu aftur í tímann. Er aftur á leiðinni tilboð sem maður getur ekki hafnað? Svo vitnað sé í fyrrgreindan borgara.