Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra stefnir að því að tollar af fatnaði og skóm verði lagðir af á þessu kjörtímabili, en á næstu dögum er von á skýrslu starfshóps á hans vegum um tollamál.
Hann kveðst í sanmali við Morgunblaðið í dag vera þeirrar skoðunar að fullt tilefni sé til að afnema tolla af innfluttum iðnaðarvörum á borð við föt og skó, en flóknara sé að eiga við tolla af matvælum. Hann útilokar þó alls ekki að afnema alla tolla af innfluttum varningi sem sjáist best á því að fyrrnefndum starfshópi hefði verið gert að leggja mat á slíkt skref.
Ráðherrann segir að afnám þessara tolla myndi auka framleiðni í landinu og draga úr bjögun á verðmyndun, auk þess að styrkja samkeppnishæfni landsins, en samanlagt myndu þessir þættir vinna upp tekjutap ríkissjóðs á skömmum tíma.
Tollar skila ríkissjóði nú 5,5 milljörðum króna á ári.