Skömm að þurfa að berjast fyrir þessu

Vigri Bergþórsson sjómaður hefur skrifað færslu á facebook sem vakið hefur mikla athygli. Þar bendir Vigri á að þegar sanddæluskipið Perlan hafi sokkið í Reykjavíkurhöfn í vikunni virðist sem sjálfvirkur sleppibúnaður björgunarbáta um borð hafi enn klikkað.

Kastljós fjallaði nýverið um brotalamir á þessum búnaði en talið er að mannslíf hefði getað bjargast ef búnaðurinn hefði virkað sem skyldi þegar sjómaður lést fyrir vestan.

Færsla Vigra er eftirfarandi:

„Í fyrradag sökk sanddæluskipið Perla við Reykjavíkurhöfn. Skipið var búið sjálfvirkum sleppibúnaði sem á undir öllum kringumstæðum að skjóta björgunarbátunum út ef skipið sekkur. Björgunarbáturinn situr ennþá sem fastast í sætinu sínu og skaust ekki út sem skildi. Fyrr í sumar gerðist þetta sama atvik einnig er dragnótabáturinn Jón Hákon BA sökk á vestfjörðum, hann var einnig búinn sjálfvirkum sleppibúnaði sem átti að skjóta bátunum út, meira að segja frá tveimur mismunandi framleiðendum, það er búið að kafa eftir flakinu og þar situr annar björgunarbáturinn ennþá í sætinu sínu en hinn við hlið hans óuppblásinn. Í því slysi fórst einn maður. Eftir atvikið á Jóni Hákoni BA hafa þrjú sjómannasamtök barist fyrir því að báturinn verði sóttur af hafsbotni og rannsakað verði ástæðuna fyrir því að báturinn sökk og hvers vegna björgunarbátarnir losnuðu ekki en það hefur lítinn árangur borið því það hefur ekki verið reynt að ná flakinu upp.“

Vigri heldur þungorður áfram í færslu sinni:

„Það er einfaldlega til háborinnar skammar að það þurfi að berjast fyrir því að þetta mál verði rannsakað, að þessi mikilvægi öryggisþáttur verði rannsakaður. Þrjú sjómannafélög að berjast fyrir þessum sjálfsagða hlut. Sjómenn, og fjölskyldur þeirra treysta á þennan búnað. Ekki láta þá missa trúnna. Vona innilega að þetta verði rannsakað betur núna eftir að Perla sökk.“