Ólafur H. Wallevik, forstöðumaður Rannsóknastofu byggingariðnaðarins við Nýsköpunarmiðstöð Íslands og prófessor við Háskólann í Reykjavík er heimsóttur í Nýsköpunarmiðstöð. Ólafur hefur um langt árabil rannsakað og þróað steinsteypu í þeim tilgangi að minnka kolefnisfótspor húsbygginga. Steinsteypa er ekki óvistvænt efni en hins vegar notað í svo miklu magni, mest notað í mannvirki á Íslandi – og ráðandi byggingarefni um allan heim.
Talið er að um hálf milljón tonn af gróðurhúsalofttegundinni Koldíoxíði losni vegna steinsteypubygginga á Íslandi. Ólafur er frumkvöðull í þessum efnum á heimsvísu og byggingar verið reistar með umhverfisvænni steypu Ólafs í stærstu löndum heims með þátttöku.
Ólafur hefur verið gestaprófessor í Kína undanfarin fimm ár og þar á undan í þrjú ár í Kanada, flytur fyrirlestra um allar álfur heimsins, m.a. austurlöndum fjær, um hvernig megi nýta steypu betur í þágu umhverfisins í byggingariðnaði.
Við förum einnig á Austurvöll, föstudaginn 3.maí þegar ellefta loftslagsverkfall unga fólksins var haldið. Ræðum við þrjá skipuleggjendur þess en alheimsverkfall er á næsta leiti en mikið af grunn-og framhaldsskólanemum skrópa í skólann á föstudögum til að krefjast meiri aðgerða í loftslagsmálum. „Til hvers að mæta í skólann þegar það er engin framtíð?“ spyr einn með mótmælaspjald á lofti.