Til hamingju ísland

Ég vil óska okkur öllum til hamingju fyrir að hafa ekki drukknað í maí !

Úrkomumet slegið í dag og mánuðurinn ekki á enda. 

Árið 1989 var úrkoman 126 millimetrar en í morgun var það met slegið sem er 127,8 mm. Þegar met er slegið ætti að læðast að manni stolt og við það eitt að heyra orðið \"met\" hugsar maður keppni, spenna drifkraftur og lófatak. Ekki núna. Núna hugsar maður bara til Spánar og setur á sig brúnkukrem.

Ég fjárfesti meira að segja sumar skóm, en það voru þessi fínu stígvél frá Nokia stígvélabúðinni í mjódd. Vert að taka fram að það var bjálað að gera í búðinni enda flæddi uppúr holræsum í síðustu viku. 

Nú skulum við bara vona að fyrst Maí var svona slæmur þá sé þessari rigningar tíð bara lokið og framundan verði met slegið í sólardögum yfir sumartímann ! 

Björtu hliðarnar gott fólk, eru einu hliðarnar 

 

**Snædís**