Hagstofa Evrópusambandsins, Eurostat, hefur tekið saman tölur yfir tíðni manndrápa miðað við fjölda íbúa fyrir árið 2017. Á þeim lista er tíðni manndrápa á Íslandi sú sama og í Slóveníu, Þýskalandi og Írlandi.
Morgunblaðið greindi frá þessu í dag en alls voru 0,9 manndráp á hverja 100 þúsund íbúa hérlendis árið 2017. Fórnarlömbin fjögur voru þau Birna Brjánsdóttir, Arnar Jónsson Aspar, Sanita Brauna og Klevis Sula. Fengu gerendur allra fórnarlambanna dóm í kjölfarið. Nánar má lesa um málið í Morgunblaðinu.