Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra telur að gera þurfi greinarmun á annars vegar lögbrotum og hins vegar tíðaranda sem viðgekkst fyrir 10-15 árum þar sem Íslendingar leituðu með fé í aflandsskjól. Þessi afstaða kom fram hjá ráðherranum í umræðum á Alþingi í dag.
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingar, beindi fyrirspurn til Sigurðar Inga forsætisráðherra um stefnu gagnvart skattaskjólum og vísaði þá sérstaklega til þess að athygli hefði vakið að varaformaður Framsóknarflokksins, ritari og þingflokksformaður hefðu öll sagt að engin ástæða væri fyrir framkvæmdastjóra Framsóknarflokksins að segja af sér trúnaðarstörfum fyrir flokkinn þótt hann væri í Panamaskjölunum.
Forsætisráðherra sagði í síðara svari sínu að senda yrði skilaboð um að það væri óeðlilegt að höndla með fé á lágskattasvæðum. Um leið yrði að viðurkenna að það sem var \"tíðarandi\" fyrir 15 árum hefði þá viðgengist. Ef um ólöglega hluti væri að ræða, vísvitandi skattsvik, yrði að bregðast við því.
Ekki varð annað skilið af svari ráðherra en að hann teldi að það hefði verið almennur tíðarandi á Íslandi að flytja fé út fyrir landsteinana til að hylja slóð, hagnast með umdeildum hætti eða svíkja undan skatti.
Um 600 Íslendingar eru í Panamaskjölunum.
Um 330.000 manns búa á Íslandi.