Tiasha & atreye: saga ættleiðingar

Hringbraut sýnir í kvöld, annan dag jóla, heimildarmynd um ættleiðingar, en það er Heiður María Rúnarsdóttir, 28 ára Keflavíkurmær sem leikstýrði myndinni.

Heiður lærði kvikmyndagerð í Kvikmyndaskóla Íslands og gerði heimildamyndina á þriðju önn í skólanum og hafði sumarið til að hugsa um hvað hana langaði að gera: \"Ég var að vinna með konu í Fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli eitt sumarið, en hún hafði ættleitt tvær telpur ásamt manni sínum. Ég  var sífellt að spyrja hana um ferlið að baki ættleiðingum. Mér fannst þetta svo áhugaverð saga að ég ákvað að spyrja hana hvort ég mætti gera heimildamynd um þau. Ég hafði alltaf þekkt þau þar sem Keflavík er nú ekki stór bær og ég hef alltaf haft mjög mikinn áhuga á að fá að vita meira um ættleiðingarferlið.\"

Myndin fjallar um hjónin Laufeyju og Sigfús og af hverju þau afréðu að ættleiða telpurnar Tiasha og Atreye frá Indlandi, hvernig þau fóru að því og hvaða tíma .að tók, en fylgst er með meðal annarsv þeim hjónum á ferð um Indland þar sem fjölskyldan heimsótti barnaheimilið sem telpurnar voru á: \"Með einu viðtali er hægt að gera 10 mismunandi myndir, allt eftir því hvernig maður klippir allt saman. Ég á ótrúlega mikið af efni sem ég tók upp en endaði á að nota ekki. Það var mjög erfitt að sitja og horfa á .að allt og ákveða hvaða púsl passaði hvar. Þetta var mjög krefjandi en alveg ótrúlega skemmtilegt verkefni,\" segir leikstjórinn.

Myndin verður sýnd klukkan 21:30 í kvöld og svo aftur 28. desember kl. 20:00

Á eftir þessari athyglisverðu mynd verður svo seinni hluti heimildarþáttarins um Guðrúnu Helgadóttur sýndur og þar á eftir kemur svo útsending á aðventuþætti Ólafanna sem frumsýndur var fyrr í mánuðinum.

Á sunnudagskvöld, þriðja í jólum, birtist seinnihluti Mannamálsþáttarins um Bubba Morthens þar sem goðsögnin gerir meðal annars upp erfiðan skilnað sem var við það að buga kappann, en í þættinum horfist Bubbi í augu við sjálfan sig með einkar persónulegum og opinskáum hætti. Á eftir Bubba kemur svo þátturinn Stjórnandinn: Áhrifamestu konurnar þar sem Björk Eiðsdóttir ræðir við áhrifakonurnar Agnesi M. Sigurðardóttur, biskup, Kristínu Eysteinsdóttur, leikhússtýru og Ólafíu B. Rafnsdóttur formann, VR, en seinni hluti þáttarins er svo á dagskrá kvöldið eftir, en þar koma við sögu Ásta Rut Jónsdóttir, stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verslunarmanna, Guðrún Hafsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Kjöríss og Rakel Þorbergsdóttir, fréttastjóri RÚV. Í þáttunum er leitast við að kanna hvernig konur stjórna og hvort þær geri það að einhverju leyti öðruvísi en karlar og spurt hvar áherslur þeirra við stjórnun liggja. Stjórn upptöku annaðist Pétur Fjeldsted.

Í sem skemmstu máli er jóladagskrá næstu daga svona:

Annar í jólum:

20:00:  Tiasha og Atreye: Ættleiðingar á Indlandi

20:30:  Guðrún Helgadóttir - seinni þáttur

21:00:  Ólafarnir - aðventuþáttur

Þriðji í jólum:

20:00:  Mannamál - Bubbi Morthens 2

20:30:  Stjórnandinn - áhrifamestu konurnar

21:00:  Bókin sem breytti mér - rætt við fjóra höfunda 

Sem fyrr segir er svo seinnihluti þáttarins Stjórnandinn - áhrifamestu konurnar, sendur út mánudagskvöldið 28. desember klukkan 20:30, en auk þess má geta að í klukkustundarlöngum Ritstjórunum klukkan 21:00 á þriðjudagskvöld á milli jóla og nýárs verður árið gert upp með þrautreyndu fjölmiðlafólki.

Starfsfólk Hringbrautar óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla, árs og friðar og þakkar afar hlýjar móttökur nýrrar sjónvarpsstöðvar á fyrsta starfsári sínu.