\"Við sem samfélag höfum smitast rosalega hratt af sorpblindu. Við sjáum ekki skítinn,\" segir Einar Bárðarson, stofnandi Plokk á Íslandi í nýjasta hefti Mannlífs, en hann hefur vakið Íslendinga til umhugsunar um sóðaskapinn sem hefur viðgengist hér á landi. Og landsmenn hafa hlýtt kallinu. Þúsundum saman fara þeir nú um þéttbýli jafnt sem dreifbýli og hirða upp rusl í tonnatali.
Samfélagið er að skipta um skoðun. Athafnamaðurinn Sigurður Gísli Pálmason, sem var gestur Mannamáls á Hringbraut í vikunni, benti þar réttilega á að það er að verða samskonar viðhorfsbreyting hér á landi til spilltrar og raskaðrar náttúru og það hafa orðið kaflaskil í afstöðu almennings til heimilisofbeldis og alls þess yfirgangs sem karlpungar hafa sýnt konum um árabil.
Þyrnirósarsvefninum er að ljúka á svo mörgum sviðum. Fólki er ekki lengur sama um náungann og umhverfið. Og vel að merkja er það ekki pólitíkinni eða stjórnmálaflokkunum að þakka. Það er lýðræðinu að þakka - og virkni fólks í umræðunni um betra og réttlátara samfélag. Fólkið hefur tekið til sinna ráða - og það er að taka fram úr hefðbundinni skotgrafapólitík. Það er breytingin.