Vitni í Skógarhlíð eru talin hafa komið á tvo menn sem voru á hlaupum í átt að Öskjuhlíð en höfðu ekki hugmynd um bankaránið í Borgartúni.
Frá þessu greinir Rúv en fjölmennt lið lögreglu og sérsveitar ríkislögreglustjóra leitar nú að ræningjunum í Öskjuhlíð og mun þyrla Landhelgisgæslunnar vera notuð til leitarinnar einnig.
Sérsveit lögreglu er talin bera ábyrgð á leitinni en ræningjarnir eru hugsanlega vopnaðir og varasamir en lögreglan hefur varist allra frétta af rannsókn málsins.