Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti um fjögur leytið í nótt konu sem hefði veikst í hestaferð nálægt Seljalandsfossi. Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Suðurlandi var beðið eftir aðstoð rétt fyrir miðnætti. Stuttu seinna voru björgunarsveitir kallaðar út til að aðstoða konuna. Þegar björgunarsveitarmenn komu á vettvang ákváðu þeir að kalla út þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Ástand konunnar er ekki vitað að svo stöddu og gat lögreglan ekki gefið neinar upplýsingar um ástand hennar.