Skoða þyrfti vegabréf um 26 þúsund manna á hverjum degi, ef tekið yrði upp vegabréfaeftirlit í Leifsstöð að hætti Þýskalands og fleiri Evrópuríkja. Það mundi leiða til mikilla tafa á umferð um flugstöðina.
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag, en þar segir nú um stundir séu skoðuð um fjögur þúsund vegabréf á dag. Ef skipt yrði um gír í þessum efnum yrði að fjölga mjög í starfsliði. Engin fyrirmæli um slíkt hafa þó borist embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum frá innanríkisráðuneytinu.
\"Það er engar ákveðnar vísbendingar um þörf á slíku hér á landi. Ekkert sem mínir menn hafa greint enn sem komið er kallar á slíkar brýnar aðgerðir fyrirvaralaust,“ segir Ólafur Helgi Kjartansson lögreglustjóri í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.