Þíða árna páls og sigmundar

Nokkur þíða birtist í samskiptum forsætisráðherra og formanns Samfylkingarinnar í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag. Árni Páll Árnason kvaddi sér þá hljóðs og hrósaði ríkisstjórninni fyrir þá leið sem kynnt var sl. laugardag gagnvart móttöku flóttamanna. Hann sagði að víðtæk pólitísk samstaða væri að skapast hér á landi um nauðsynlegar aðgerðir.

Árni Páll vildi að forsætisráðherra léti kanna hvort hægt væri að greiða götu flóttafólks frá Sýrlandi þannig að það kæmist milliliðalaust til Íslands.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra þakkaði Árna Páli að lýsa ánægju vegna aðgerðanna sem hefðu verið kynntar. Var til þess tekið hve kært var milli þeirra tveggja á þinginu í dag og sætti tíðindum í ljósi þess að oftar en ekki hefur í óundirbúnum fyrirspurnum slegið í snarpa brýnu þeirra tveggja á millum.