Þvottabjörninn rannsakaður

Rannsakað verður hvort þvottabjörninn sem fannst í vikunni hafi borið dýrasjúkdóma með sér til landsins. Hundurinn sem komst í snertingu við dýrið hefur verið settur í einangrun á heimili sínu og sýni tekið úr honum.

Þvottabjörn fannst við Hafnir á Reykjanesi í byrjun vikunnar. Matvælastofnun hefur sent þvottabjörnin sem fannst við Hafnir í sýnatöku og krufningu til Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum. Björninn fannst í byrjun vikunnar og var það hundur sem fann hann.

Ekki er vitað hvernig þvottabjörninn barst til landsins. Innflutningur á þvottabjörnum er með öllu óheimill, segir á vef MAST.