Þvoið gluggana í næsta vatnsveðri

Síðustu daga hefur veðrið gert það að verkum að gluggarnir eru orðnir fremur óhreinir að utan og illa sést út. Nú styttist í áramótin og þá hafa margir gaman að því að njóta þess að horfa á flugeldasýninguna miklu út um gluggana og njóta. Þá er mikilvægt að vera búin að þvo gluggana. Sjöfn Þórðar veit hvert best væri að leita til að fá góð ráð þegar kemur að gluggaþvotti eins og mörgu öðru. En Albert Eiríksson matar- og sælkerabloggara er ávallt með góð húsráð á hreinu og leggur til að við þvoum gluggana í næsta vatnsveðri. „Besta húsráðið við óhreinum gluggum er að þvo þá næst þegar rignir hressilega. Rigningin sér um að bleyta upp óhreinindin og skolar ryk, salt og önnur óhreinindi af húsinu. Munið bara næst þegar gerir úrhelli: þrífið glerið með mildu sápuvatn og skafið það á eftir með þar til gerðri sköfu. Þetta er bæði hressandi og svo kemur árangurinn kemur strax í ljós,“ segir Albert sem bíður spenntur eftir næsta vatnsveðri til að þvo gluggana fyrir flugeldasýninguna miklu.

\"\"

Hægt er að fylgjast með blogginu hans Alberts á heimasíðunni hans Albert eldar: https://www.alberteldar.com/