Jón Valur Jensson guðfræðingur hefur ritað bloggfærslu undir fyrirsögninni: „Fjölmenningarhyggja meðvirkra opinberar flónsku sína og ábyrgðarleysi“.
Tilefni hinnar stóru fyrirsagnar er að Jón Valur segist hafa heyrt lesna veðurspá í útvarpi af útlendingi með bjöguðum hreim.
„Trúði ég vart, er mér var sagt að sá væri kominn í starfið. Öryggi sjómanna er vanvirt með þessu, auðvelt að heyra illa eða ekki hvað sagt er. Veðurfréttir þurfa að vera lesnar af 100% nákvæmni, ekkert að fara á milli mála. Vegfarendur þurfa að heyra vel sína veðurspá -- þetta bætir ekki heyrnina, heldur þvert á móti.“
Hann heldur áfram:
„En hér hefur \"fjölmenningarhyggja\" meðvirkra tekið völdin. Þetta gengur ekki lengur, þessi flónslega meðvirkni er gengin út yfir allan þjófabálk.“
Og Jón Valur vill rannsókn.
„Grafast þarf fyrir um, hver tók þessa ákvörðun. Að lesa veðurfréttir er ekki einhver \"mannréttindi\" í kjarareiptogi, heldur þjónusta sem margir þurfa að geta reitt sig á. Tilraunastarfsemi með öryggi sjómanna og ferðamanna er eitthvað sem aldrei á við. Ég krefst þess, án þess að þekkja þennan mann hið minnsta, að þessi ákvörðun verði dregin til baka.“
Úr öryggi íslenskra sjómanna bregður Jón Valur sér svo austur til Svíþjóðar og endar pistil sinn á:
„Annað dæmi um slíka meðvirkni er, að í sænska sjónvarpinu var ákveðið að láta múslima sjá um að kynna jóladagskrána! Mikið óskaplega hlýtur þeim flónum, sem þessu hafa ráðið, að líða vel með sína flónsku og sitt uppblásna gerviréttlæti.“
A.m.k. einn sjómaður hefur nú þegar brugðist við þessum ummælum og rakkað þau niður. Þannig segir Úlfar Hauksson, sjómaður á Akureyri um Jón Val:
„Nú stunda ég sjómennsku og fullyrði að öryggi sjómanna er ekki á nokkurn hátt ógnað þó að veðurfréttalesari tali með hreim. Afsakið orðbragðið en þvílíkur erki-asni sem þessi mannleysa er.“