Mikið unnin matvæli, plastpakkað snarl og sykur í fæði fólks virðist auka líkur fólks á að fá krabbamein einna mest af öllu að því er frönsk rannsókn með 100 þúsund manna úrtaki leiðir í ljós. Rannsóknin bendir sterklega til að þessar fæðutegundir skipti jafnvel meira máli en aðrir þættir svo sem aldur, kyn, þyngd, líkamsrækt, fjöldi hitaeininga í mat, fjölskyldusaga, reykingar og drykkja áfengis.
Niðurstaðan fékkst með því að fólkið fyllti út nákvæman spurningalista um mattaræði þessi í viku, sem er talið hafa gefið góða mynd af matarræðinu.
Fólk sem borðaði meira ferskmeti eða mat eldaðan frá grunni heima eða á veitingahúsum virtist síður eiga á hættu að fá krabbamein.
Nánar hér á vef BBC.