Jón Gerald Sullenberger kaupmaður segir að ef marka megi tilskrif eiginkonu Ólafs Ólafssonar athafnamanns um Al Thani málið sé bæði sjálfsagt og rökrétt að yfirvöld sleppi Ólafi úr tukthúsi. Sjálfur lesi Jón Gerald allt annað úr dómi Hæstaréttar en eiginkonan.
Skrif Jóns Geralds birtast í Fréttablaðinu í dag og eru hlaðin spurningum til Ingibjargar Kristjánsdóttur, eiginkonu Ólafs, en hún hefur staðfastlega haldið fram sakleysi eiginmanns síns og sagt að hann hafi ekki haft neina aðkomu að Al Thani málinu.
Jón Gerald kveðst hugsi vegna þessara orða og spyr eiginkonuna í þaula í grein sinni, til dæmis hvernig standi á því að félag í eigu Ólafs hafi getað lánað félagi í eigu Al Thanis ef samskipti þeirra hafi engin verið. Og Jón Gerald spyr áfram: "Er það rétt að eftir að Kaupþing banki féll, þá hafi Ólafur Ólafsson, eiginmaður þinn, hringt til Kaupþings banka í Lúxemborg og beðið starfsmenn bankans um að allar ábyrgðir, sem Sjeik Al Thani hafði undirgengist, yrðu felldar niður?"
Spurningar sínar byggir Jón Gerald á lestri Hæstaréttardómsins í Al Thani málinu - og hann heldur áfram: "Fram kom fyrir dómi að eiginmaður þinn, Ólafur Ólafsson, hafi persónulega greitt mörg hundruð milljónir króna í vexti af láni til Al Thanis. Ef eiginmaður þinn kom hvergi nálægt þessum hlutabréfakaupum Sjeiks Al Thani eins og þið hjónin viljið halda fram, af hverju er þá Ólafur Ólafsson, eiginmaður þinn, að greiða vexti fyrir einn ríkasta mann í heimi, þar sem þetta voru hans persónulegu hlutabréfakaup í Kaupþingi banka en ekki ykkar hjóna?"