Átta þúsund manns hafa skrifað undir áskorun til stjórnvalda þar sem þau eru hvött til þess að veita Telati-fjölskyldunni frá Albaníu hæli hér á landi.
Það var fréttastofa 365 miðla sem fjallaði um málið um helgina, en fjölskyldan komst einnig í fréttirnar fyrir nokkru þar sem börn fjölskyldunnar voru ekki byrjuð í skóla.
Borgaryfirvöld leystu aftur á móti skjótt úr því vandamáli, en nú blasir brottvísun við fjölskyldunni.
Telati og fjölskylda eru efnahagslegir flóttamenn, að því er segir í frétt DV um mál hennar í dag. Í viðtali á Stöð 2 kom meðal annars fram að ribbaldar hefðu tekið hús þeirra í Albaníu traustataki og rekið þau á brott.
Hér má nálgast undirskriftasöfnunina, sem hófst fyrir tveimur dögum.