Þúsundir lánasamninga eru í uppnámi eftir nærfellt eins mánaðarlangt verkfall lögfræðinga á sýslumannsskrifstofum, en þeir eru innan raða Bandalags háskólamanna sem hóf vinnustöðvun 6. apríl síðastliðinn. Verkfallið er farið að valda víðtækri keðjuverkun innan fasteignageirans.
Að sögn fasteignasala sem hringbraut.is hefur rætt við síðustu daga er fjöldi fólks kominn í veruleg vandræði vegna þess að lánasamningum er ekki lengur þinglýst sakir verkfallsins sem gerir það að verkum að keðja venjulegra fasteignaviðskipta hefur slitnað; lán sem einn þarf á að halda og fæst ekki afhent hefur þau áhrif að margþætt viðskipti á þessu sviði ganga ekki lengur upp. Þetta merkir með öðrum orðum að einhvers staðar í söluferlinu tapar annaðhvorrt seljandi eða kaupandi á því að geta ekki virkjað lán sitt til kaupa eða endurkaupa.
Einn fasteignasalanna sem vefurinn ræddi vip orðaði þetta svona: Skaðinn af þessu öllu saman endar í heimilisbókhaldi almennings á meðan ríkið sjálft situr uppi með belti og axlabönd; þarf ekki að borga starfsfólki sýslumannsembættanna laun en fær á endanum allar tekjurnar sem því eru tryggðar samkvæmt lögum. Og þvi meir sem ríkið dregur að semja því meiri er fjárhagslegur ávinningur þess á kostnað almennings sem tapar í mörgum tilvikum hundruðum þúsunda króna í fasteignaviðskiptum sínum á þessum verkfallstíma.