Þúsundir gesta í hlíðarfjalli

Þúsundir gesta hafa rennt sér á skíðum í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar í blíðskaparveðri það sem af er degi. Mikill straumur ferðafólks lá norður yfir heiðar í allan gærdag og þess sér stað á vinsælustu skíðasvæðunum á Tröllaskaga; fjöldi fólks er einnig í Skarðsdal á Siglufirði, svo og í Böggvistaðafjalli ofan við Dalvík. Einu sólarglætuna á landinu er að finna um mitt norðanvert landið á fyrstu dögum páskahelgarinnar á meðan víða hefur rignt um sunnan-, suðvestan- og suðaustanvert landið. Þegar þessi mynd var tekin í Hlíðarfjalli í dag var nánast stafalogn, tveggja stiga hiti og hálfskýjað eins og myndin ber raunar með sér. Aðra sögu er að segja af skíðasvæðunum syðra, en lokað er í Bláfjöllum og Skálafelli.


Veður fer hlýnandi og gæti slegið í 10 stiga hita á Austurlandi á morgun en svo kólnar aftur á sunnudag með norðaustlægri átt.


Umferð á þjóðvegum hefur gengið vel það sem er páskahelginni, en vert er að fara þar með gát, því víða er mjög hált og á köflum þæfingsfærð, einkum upp til heiða.