Persónuafsláttur hækkar í samræmi við hækkun vísitölu neysluverðs um áramótin í samræmi við lög um tekjuskatt.
Á grundvelli þess verður persónuafsláttur 623.042 kr. fyrir árið 2016, eða 51.920 krónur á mánuði. Persónuafsláttur einstaklinga hækkar um 12.217 kr. milli áranna 2015 og 2016, eða um 1.018 kr. á mánuði og nemur hækkunin 2,0%.
Skattleysismörk tekjuskatts og útsvars verða samkvæmt því 145.659 kr. á mánuði að teknu tilliti til 4% lögbundinnar iðgjaldsgreiðslu launþega í lífeyrissjóð samanborið við 142.153 kr. á mánuði 2015. Hækkunin milli ára nemur 2,5%.
Á vef Fjármála- og efnahagsráðuneytisins kemur fram að á haustþingi voru lögfestar breytingar á tekjuskattskerfi einstaklinga þar sem skattþrepum er fækkað úr þremur í tvö í tveimur áföngum. Fyrri áfangi kemur til framkvæmda á árinu 2016. Skatthlutfall tekjuskatts í fyrsta þrepi lækkar um 0,18 prósentustig, úr 22,86% í 22,68%, skatthlutfallið í öðru þrepi lækkar um 1,4 prósentustig, úr 25,3% í 23,9% og þriðja þrepið helst óbreytt í 31,8%. Jafnframt lækka þrepamörkin í þriðja þrepi í 770.000 kr. á mánuði. Sú fjárhæð tekur breytingum í samræmi við hækkun launavísitölu.
Mörk milli skattþrepa, taka breytingum í upphafi hvers árs í réttu hlutfalli við hækkun launavísitölu á undangengnu tólf mánaða tímabili. Launavísitala nóvembermánaðar liggur nú fyrir og er hækkun hennar á tólf mánaða tímabili 8,7%.
„Mánaðarleg tekjumiðunarmörk þrepa verða samkvæmt því 336.035 kr. í fyrsta þrepi, 500.955 kr. í öðru þrepi og 836.990 kr. í þriðja þrepi fyrir tekjur ársins 2016. Tekjuskattur er lagður á í þremur þrepum í síðasta sinn á árinu 2016. Þrepin skiptast þannig að af fyrstu 4.032.420 kr. árstekjum einstaklings (336.035 kr. á mánuði) er reiknaður 22,68% skattur. Af næstu 6.011.460 kr. (500.955 kr. á mánuði) er reiknaður 23,9% skattur og síðan í þriðja þrepi 31,80% skattur af árstekjum umfram 10.043.880 kr. (836.990 kr. á mánuði),“ segir á vef Einingar-Iðju.
Við þessi hlutföll bætist útsvar sem er mishátt eftir sveitarfélögum. Hámarksútsvar 14,52% er óbreytt á grundvelli samkomulags ríkis og sveitarfélaga vegna málefna fatlaðs fólks en sú tímabundna breyting sem gilt hafði um 0,04 prósentustiga tilfærslu milli tekjuskatts og útsvars var lögfest til frambúðar á yfirstandandi haustþingi. Meðalútsvar á árinu 2016 verður samkvæmt fyrirliggjandi ákvörðunum sveitarfélaga 14,45% og hækkar um 0,01 prósentustig frá árinu 2015. Í staðgreiðslu dregur launagreiðandi frá skatt þar sem miðað er við meðalútsvarshlutfall.
Sveitarfélög geta samkvæmt lögum um tekjustofna sveitarfélaga ákveðið útsvar á bilinu 12,44% til 14,52%. Af 74 sveitarfélögum leggja 57 á hámarksútsvar. Eitt þeirra nýtir að auki sérstakt álag og verður útsvarshlutfall þess 15,05%. Þrjú sveitarfélög leggja á lágmarksútsvar. Eitt sveitarfélag hækkaði útsvarsprósentuna og eitt sveitarfélag lækkaði hana. Útsvarshlutfall einstakra sveitarfélaga kemur fram í fylgiskjali.
Staðgreiðsluhlutfall ársins 2016 í heild, þ.e. bæði vegna tekjuskatts og útsvars verður þríþætt eftir fjárhæð tekna, þ.e. 37,13% á tekjur í fyrsta þrepi, 38,35% á tekjur í öðru þrepi og 46,25% á tekjur í þriðja þrepi.