Sitt sýnist hverjum um hvort við þurfum forseta. Því er, eða réttara sagt, verður spurt; þurfum við forseta?
Í sunnudagsþætti okkar, sem enn nefnist Þjóðbraut á sunnudegi, verður að venju margt til umræðu. Ein ágeng spurning mun koma við sögu í þættinum, en hún er þessi; þurfum við forseta?
Getum við sinnt hlutverki forseta með öðrum hætti? Er unnt að sameina embætti forseta Íslands og embætti forseta Alþingis? Og ef svo er, hver kýs þá forsetann? Þingið eða þjóðin?
Við ætlum líka að spyrja hvort við þurfum búvörusamning og hvort Donald Trump verði kannski næsti forseti Bandaríkjanna og þá trúlega valdamesti maður heimsins.
Trúlega hefur ekki í annan tíma verið jafn mikil þjóðfélagsumræða í sjónvarpi og nú er. Og þar munar trúlega mest um Hringbraut.
Sigurjón M. Egilsson.