Þurfum að sjá heildarmyndina

Í umræðunni um sjómannaverkfallið segir Ágúst Einarsson, prófessor í hagfræði, að upphæðirnar sem tapast á hverjum degi vegna verkfalls sjómanna, sýni að sjávarútvegur sé enn langmikilvægasta atvinnugrein Íslands. Hann segir að á endanum tapi allir á verkfallinu og að Íslendingar sem þjóð verði að fara að hugsa um heildina, en ekki bara hver og einn um sjálfan sig. Sölvi ræðir við Ágúst í Bryggjunni í kvöld sem er frumsýnd kl.21.