Þurftu að bera fótbrotinn ferðamann fjóra kílómetra

Nokkuð hefur verið um annir hjá þeim björgunarsveitarhópum sem manna hálendisvakt björgunarsveita þessa dagana og töluvert um slys og minni háttar óhöpp á hálendinu.

Að ganga þrjú í dag var tilkynnt um slasaðan göngumann á gönguleiðinni Laugaveginum, sunnan við Hrafntinnusker. Björgunarfólk er nú komið að manninum, búið er að hlúa að honum og setja á börur. Bera þarf viðkomandi um fjögurra kílómetra leið að jeppa og aka honum svo á móts við sjúkrabifreið sem flytur hann á sjúkrahús en maðurinn er líklega fótbrotinn.

Í gærkvöldi var leitað að konu sem var villt í þoku á gönguleiðinni inn að Öskjuvatni á hálendinu norðan Vatnajökuls. Á svæðinu var snjókoma og frost en í slíku veðri kólnar fólk hratt sé það ekki vel búið. Björgunarmenn fundu konuna skjótt og fóru með hana í skála við Drekagil þar sem hún fékk hlý föt og heitt að drekka.