Þurfti 600 milljónir, fékk 400

Lárus Blöndal, forseti Íþrótta- og ólympíusambands Íslands, sagði í viðtali í Þjóðbraut í lok júní, það er meðan þjóðin var farast úr spennu vegna velgengni landsliðsins í Evrópumeistaramótinu í Frakklandi, að um eitt hundrað milljónum hafi verið varið í afrekssjóð ÍSÍ. Hann sagði að til danska handboltasambandsins séu settar um 320 milljónir íslenskra króna á ári. Hann sagði að hið minnsta þurfi að sexfalda framlagið hér svo vel verði við unað.

Nú hefur verið ákveðið að koma til móts við þarfir íþróttafólksins, þannig á nokkrum árum verður framlag í afrekssjóðinn aukið úr eitt hundrað milljónum í fjögur hundruð.

Ríkisstjórnin ákvað að bæta í, en um leið ákvað hún að fara ekki alla leið. Enginn efast um hversu mikils virði afrek íþróttafólks eru samfélaginu. Nema ef vera skyldi ríkisstjórn Íslands.