„Meðlimir í FFÍ hafa þurft að þola kúgun og ógnarstjórnun milljón krónu-mannanna. Kvennastétt sem notar hjarta, hendur og heila við sína vinnu hefur þurft að þola það að vera sagt upp stöfum, kastað í ruslið, vegna þess að meðlimir hennar vildu ekki hlýða skipunum frá þeim sem telja sig eigendur alls á þessari eyju.“
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir stjórnendur Icelandair og Samtaka atvinnulífsins hafa gengið fram af ótrúlegri hörku gagnvart Flugfreyjufélagi Íslands að undanförnu.
Útmálaðar sem galnar
„Svona er ástandið í kvennaparadísinni; vinnandi konur eiga von á því að vera útmálaðar sem galnar og haldnar skemmdarfýsn, eiga von á því að vera hæddar og smánaðar fyrir það eitt að reyna að standa vörð um réttindi sín og berjast fyrir eðlilegum launum fyrir sína unnu vinnu.“
„Í aðförinni að FFÍ réðust IcelandAir og SA gegn rétti vinnandi fólks á Íslandi til að bindast samtökum í stéttarfélagi og semja sameiginlega um kjör sín. Harkan sem sýnd var af þessum aðilum er til háborinnar skammar og verður lengi í minnum höfð,“ skrifar hún í færslu á Facebook-síðu sinni.
Fulltrúar flugfélagsins og Samtaka atvinnulífsins skuldi flugfreyjum afsökunarbeiðni vegna þessa.
Móðgun að lagst hafi verið gegn afskiptum verkalýðsforkólfa
Þá segir Sólveig að vinnandi fólk á Íslandi geti ekki og muni ekki samþykkja að lífeyrissjóðir verði notaðir til að „fjármagna árásir á grunnréttindi vinnuaflsins eða til fjármögnunar á fyrirtækjum sem standa í fararbroddi slíkra árása.“
Unnur Gunnarsdóttir, varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlitsins, sagði í samtali við Fréttablaðið fyrir helgi að það væri „algjörlega óeðlilegt og ófaglegt“ af verkalýðsfélögunum að setja þrýsting á stjórnir lífeyrissjóðanna og reyna að fá þær til að sniðganga væntanlegt hlutafjárútboð Icelandair.
Formaður Eflingar tekur þetta ekki í mál.
„Það er móðgun við mig og aðra meðlimi stéttar verka og láglaunafólks að þurfa að hlusta á það úr fílabeinsturnum hinn hátt settu að ekki megi berjast gegn því að lífeyrissjóðir okkar séu nýttir í að láta óra auðvaldsins rætast. Hvað heldur fólk eiginlega að það sé?“
Ömurleg atburðarás
Sólveig segir að flugfreyjur hafi þurft að ganga í gegnum ömurlega atburðarás og vonar að sátt sé með nýja samninginn.
„Það virðist því miður vera þannig á Íslandi í kreðsum þeirra sem ráða í krafti fjármagns að enginn glæpur er stærri en sá er kona í verkalýðsbaráttu fremur. Það er ógeðslegt að verða vitni að því. Ég vona af öllu hjarta að við getum staðið saman í því sem koma skal. Aðeins með því munum við geta tryggt að hagsmunir almennings verði ekki undirseldir órum, frekju og fautaskap auðstéttanna.“