Skúli Mogensen, forstjóri og eigandi WOW air, reynir nú eftir fremsta megni að forða gjaldþroti flugfélagsins. Fréttablaðið greinir frá því að Arctica Finance, ráðgjafi félagsins, vinni nú að því að safna 42 milljónum dollara, andvirði rúmlega fimm milljarða króna, í því skyni, og að hafa verði hraðar hendur í þeirri söfnun.
Í umfjöllun Fréttablaðsins kemur fram að WOW air skuldi um 200 milljónir dollara, um 24 milljarða íslenskra króna. Félagið skuldar m.a. skuldabréfaeigendum, Arion banka, Isavia og öðrum viðskiptavinum.
Morgunblaðið greinir frá því að tap WOW air á síðasta ári hafi numið 22 milljörðum króna. Auk þess mun lausafjárstaða félagsins vera neikvæð sem nemur rúmum 11 milljónum dollara, jafnvirði 1,4 milljarða króna. Þá er eigið fé WOW air sagt vera neikvætt sem nemur rúmum 111 milljónum dollara, jafnvirði ríflega 13 milljarða króna. Hlutfallsleg bókunarstaða félagsins ku vera um helmingur af því sem hún var á sama tíma fyrir ári. Leggja þurfi WOW air til að minnsta kosti 10 milljarða króna út þetta ár svo halda megi rekstrinum á floti.