Þurfa ekki að hittast í öskjuhlíð!

Þjóðmálarýnirinn Jónas Kristjánsson er í meira lagi gáttaður á háttalagi þeirra sem stjórna olíufélögunum hér á landi. Hann lætur þá heyra það í nýrri færslu sinni á jonas.is og sparar að vanda ekki stóru orðin. 

\"Olíubransanum íslenzka er stjórnað með þráðlausri tengingu hugarafls,\" skrifar hann og heldur áfram: \"Á sama andartaki dettur öllum olíuforstjórum í hug að breyta verði. Meðan olían lækkar í innkaupi um 57% lækkar hún í útsölu um 12%,\" og ritstjórinn reyndi hugar að landafræðinni: \"Þurfa ekki einu sinni að hittast uppi í Öskjuhlíð, svo fullkomið er sambýli hugaraflsins.\"

Hann kemst að þessari niðurstöðu: \"Þetta er fáokunin, hið fullkomna lokastig hins margrómaða frjálsa markaðar. Á Íslandi hefur lokastigi verið náð í flestum atvinnugreinum. Fyrir löngu var myndaður sértrúarsöfnuður um óra tveggja spámanna markaðshyggju, Friedman og Hayek. Söfnuðurinn kallaðist Eimreiðarhópurinn. Hefur stýrt martröð fáokunar frjálsa markaðarins um áratugi.