Hanna Birna Kristjánsdóttir, fráfarandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi innanríkisráðherra sagði í viðtali í kvöld á Hringbraurt að það væri umhugsunarefni fyrir alla, utan stjórnmála eða innan, hvort sömu kröfur séu gerðar til kvenna og karla í stjórnmálum. Í viðtalinu sagðist hún efast um að sömu kröfur væru gerðar til konu í valdastöðu og karla. Konur þyrftu að vera „hreinar“ og „heilagar“ en karlarnir væru á móti bara að „spila leikinn”. Hún sagðist hafa orðið fyrir vonbrigðum með stjórnmálin miðað við það sem hún ætlaði sér fyrir 25 árum þegar hún hóf afskipti af stjórnmálum.
Þurfa að vera „hreinar“ og „heilagar“
Fleiri fréttir
Nýjast