Þungu fargi létt af tómasi lækni

Dr. Paolo Macchiarini, sem græddi plastbarka í Erítreumanninn Andemariam Beyene fyrir fjórum árum ásamt íslensku læknunum Tómasi Guðbjartssyni og Óskari Einarssyni, gerðist ekki sekur um vísindalegt misferli. Greinargerð sem íslensku læknarnir skiluðu lék lykilhlutverk í málinu.
 

Þetta kemur fram á vef New York Times, en fréttavefur RÚV fjallar ítarlega um þessar málalyktir í dag.  

Þar segir að Karólínska sjúkrahúsið hafi á síðasta ári hafið rannsókn á ásökunum um að Dr. Macchiarini hafi ekki fengið siðanefndarsamþykki fyrir aðgerðum sem hann framkvæmdi og að hann hefði gefið rangar upplýsingar um niðurstöður einnar aðgerðarinnar í grein í virtu læknariti.

Í skýrslu sem Anders Hamsten, yfirmaður hjá háskólahluta Karólínska-sjúkrahússins, gerði og birt var í dag kemur fram Macchiarini hafi ekki gerst sekur um vísindalegt misferli.

Hamsten vísar því enn fremur á bug í skýrslu sinni að ítalski læknirinn hafi falsað upplýsingar um ástand þriggja sjúklinga í þremur greinum - meðal annars einni sem birtist í hinu virta The Lancet og íslensku læknarnir voru meðhöfundar að.

Tómas segir í samtali við fréttastofu að niðurstaðan sé mjög ánægjuleg og þungu fargi sé af honum létt þótt hann hafi alltaf verið sannfærður um að þeir væru að gera það rétta í stöðunni.  

Hann og Óskar skiluðu greinargerð um málið í júní sem Tómas segir að þeir hafi lagt mikla vinnu. Hamsten nefnir það í skýrslu sinni í dag hversu miklarvægar sú greinargerð hafi verið til að varpa ljósi á atburðarrásina. Hamsten bendi enn fremur á í skýrslu sinni að þegar málið hafi fyrst komið upp hafi ekki verið leitað sérstaklega eftir gögnum frá Íslandi.  „Þau reyndust lykilatriði í því að sýna fram á að margar af þessum ásökunum væru hreint og beint rangar,“ segir Tómas.

Hann segir að það sé erfitt fyrir lækni og vísindamann að vera borinn svona þungum og röngum sökum - ekki síst þar sem þeir hafi verið beðnir um að tjá sig ekki um málið og því átt erfitt með að svara rangfærslum. „Það hafa verið viðhöfð stór orð en við höfum alltaf trúað því að niðurstaðan yrði eins og hún er,“ segir Tómas en tekið er fram í skýrslu Hamsten hversu fagmanleg meðferðin á Beyene hafi verið hér á landi, bæði fyrir og eftir aðgerðina.