Þungt haldinn eftir hnífsstungu í nótt

Maður á þrítugsaldri liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítalans eftir að hafa verið stunginn í baki með hnífi í Vesturbæ Reykjavíkur í nótt, en árásarmaðurinn, sem einnig er á þrítugsaldri er í haldi lögreglunnar.

Mennirnir tveir eru félagar og báðir fæddir árið 1989 samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Svo virðist sem einhver ágreiningur hafi komið upp á milli þeirra sem endaði með því að annar tók upp hníf og stakk hinn í bakið. Árásin átti sér stað utandyra á Sæmundargötu, skammt frá  stúdentagörðunum.

Maðurinn sem varð fyrir stungunni fór í aðgerð í nótt og er líðan hans stöðug að sögn lækna.