Þungra refsinga krafist í stím-málinu

Saksóknari krefst þungra dóma í svokölluðu Stím-máli yfir þeim þremur sem ákærðir eru.

Hann vill að Lár­us Weld­ing, fyrr­ver­andi banka­stjóri Glitn­is banka, fái fang­elsi ekki skem­ur en fimm ár.

Jó­hann­es Bald­urs­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri markaðsviðskipta bank­ans, fái fang­elsi ekki skem­ur en þrjú ár.

Þor­valdur Lúðvík Sig­ur­jóns­son, fyrr­ver­andi banka­stjóri Saga Capital, fari í fang­elsi í ekki skemmri tíma en 18 mánuði.

Í frétt mbl.is um þetta mál segir að Lár­us sé ákærður fyr­ir umboðssvik með því að hafa farið út fyr­ir heim­ild­ir sín­ar til lán­veit­inga hjá Glitni banka þegar hann beitti sér fyr­ir því að fé­lag­inu FS36, sem síðar varð Stim, fengi um 20 millj­arða króna lán frá bank­an­um með veði í öllu hluta­fé fé­lags­ins og bréf­um í FL Group sem láns­féð var notað til að kaupa. Láns­féð var einnig notað til að kaupa bréf í Glitni.

Jó­hann­es sé ákærður fyr­ir umboðssvik fyr­ir að hafa beitt sér fyr­ir því að fjár­fest­inga­sjóður­inn GLB FX, í eigu Glitn­is banka, keypti fram­virkt skulda­bréf í Stím af Saga Capital.

Þor­vald­ur Lúðvík sé ákærður fyr­ir hlut­deild í umboðssvik­um með því að hafa hvatt til þeirra viðskipta og liðsinnt Jó­hann­esi í þeim. Mark­miðið með viðskipt­un­um hafi verið að tryggja að Saga Capital fengi kröfu sína að fullu bætta. Þor­vald­ur Lúðvík hefði enn­frem­ur haft per­sónu­legra hags­muna að gæta en hann hefði átt 12% hlut í Saga Capital.