Þungfært enn og þæfingsfærð

Þótt komið sé fram í miðja fyrstu viku júní er ennþá þungfært eða þæfingsfærð á fjölda fjallvega um norðvestan- og norðaustanvert landið, enda ætlar norðanbálið engan endi að taka með öllum sínum hraglanda.


Hitafarið er enda með nokkrum ólíkindum, en búist er við eins til sjö stiga hita norðantil í dag en svo fer hann jafnvel kólnandi nyrðra þegar líður að helgi og vart að tölurnar sem kenndar eru við hita fari mikið upp fyrir fjórar gráðurnar með tilheyrandi slyddu og krapaeðju.


Vegasamgöngur eru eftir þessu varhugaverðar. Á Vestfjörðum er þæfingsfærð á Steingrímsfjarðarheiði og þá eru hálkublettir á Þröskuldum og Dynjandisheiði. Þungfært er norður í Árneshrepp.


Á Norðaustur- og Austurlandi er snjóþekja og éljagangur í Mývatnssveit. Snjóþekja er á Möðrudalsöræfum, Vopnafjarðaheiði, Breiðdalsheiði og Öxi. Hálkublettir eru á Siglufjarðarvegi og Fjarðarheiði. Þæfingsfærð er á Vatnskarði eystra og  þungfært og skafrenningur í Mjóafjörð.


Spáð er hlýnandi veðri um allt land á mánudag.