Þungfært á akureyri vegna snjóa

Þung­fært er innan bæjar á Ak­ur­eyri en snjó kyngdi niður í bæn­um í nótt.

Mbl.is segir að sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá lög­reglu sé ný­byrjað að ryðja aðalleiðir en stræt­is­vagn­ar bæj­ar­ins byrji að öll­um lík­ind­um ekki að ganga fyrr en kl. 7.30 eða 8.

Lög­regla brýn­ir fyr­ir fólki að huga að því áður en lagt er af stað að það kom­ist leiða sinna á öku­tækj­um sín­um. Þung­fært er og þæf­ing­ur á veg­um um­hverf­is bæ­inn en ein­hver mokst­urs­tæki kom­in af stað.

Fólki sem ætl­ar eitt­hvað lengra þenn­an morg­un er bent á að fylgj­ast vel með ástand­inu á vef Vega­gerðar­inn­ar.