Einn nýjasti þáttur Hringbrautar, Heimilið hefur fengið einkar góð viðbrögð áhorfenda en þar fær sjónvarpsmaðurinn Sigmundur Ernir til sín fagfólk til að fjalla um allt sem snýr að rekstri og viðhaldi heimilisins.
Meðal þess sem fjallað er um í þættinum í kvöld, sem frumsýndur er klukkan 20:00 og varir í klukkustund, er breytt verðlag innkaupakörfunnar, sparnaður í tryggingum heimilisins, ný og spennandi kynslóð heimilisbíla, hvernig hægt er að verjast meindýrum í og við heimilið og loks verður fræðst um raforkusparnað þegar kemur að stórum og smáum raftækjum sem allir líta á sem nauðsyn á hverju heimili í dag.
Það er Eyþór Örn Eyjólfsson, sérfræðingur hjá Smith & Norland sem leiðir áhorfendur í allan sannleika um raforkusparnaðinn í þættinum annaðkvöld en óhætt er að segja að áhorfendur græði mikið á að hlusta á útskýringar hans. Eyþór Örn bendir meðal annars á hver þróunin er í raftækjageiranum, hvernig hægt er að viðhalda eldri raftækjum heimilisins svo þau endist betur og eyði minna rafmagni, en þar segir hann grænmetisskúffuna skipta einna mestu máli; eyðslan þar og sóunin nemi miklum fjárhæðum á hverju ári, meira og minna að nauðsynjalausu vegna þess að fólk átti sig ekki á rakastigi og réttum hita í skúffunni at arna.
Allar ábendingar um viðmælendur, spurningar og efnistök þáttarins eru vel þegnar á netfangi þáttastjórnandans, [email protected].
Heimilið er frumsýnt öll föstudagskvöld klukkan 20:00.