\"Elsku þú sem græddir Samsung galaxy s4 active í nótt á d10, ég vona að þú njótir afskaplega vel,\" skrifar kona sem varð fyrir þeirri óþægilegu lífsreynslu að símanum hennar var stolið um helgina.
Konan sem hér um ræðir, Ingibjörg Freyja Gunnarsdóttir biður þann sem tók símann náðarsamlegast að senda sér sd-kortið aftur svo hún tapi ekki öllum myndum úr símanum. \"Ómetanlegar myndir sem ég mun annars aldrei sjá aftur, af látnum fjölskyldumeðlimum sem dæmi,\" segir hún í færslu sinni sem eðlilega hefur vakið athygli.
Ingibjörg Freyja, sem er frá Patreksfirði, vonar að fólk hafi augun hjá sér og biður þá sem hafa einhverjar upplýsingar að láta sig vita.
Svolítið dæmigerð saga úr samtímanum, sem kannski vel flestir kannast við, svona í tilefni fyrstu helgi ársins utan hátíða ...