„Það eru engin mál í gangi gagnvart mér og engin dómsmál. Þessu er lokið og alveg komið gott.“ Þetta sagði Jón Ásgeir Jóhannesson en hann var gestur Sigmundar Ernis í þættinum Mannamál sem sýndur var hér á Hringbraut í kvöld. Jón Ásgeir hefur verið undir radarnum síðustu ár líkt og hann orðar það sjálfur í viðtalinu og veitir sjaldan stór viðtöl. Í þættinum fór Jón Ásgeir ítarlega í saumana á Baugsmálinu, átökin við Davíð og Sjálfstæðisflokkinn, fall Glitnis og hvaða áhrif allt þetta hafði á fjölskylduna.
Jón Ásgeir heldur fram að um einbeittan brotavilja hafi verið að ræða hjá yfirvöldum til að koma á hann og fjölskyldu hans höggi sem hafi byrjað með húsleit í Baug árið 2002. Stjórnmálamenn, öfundsjúkir viðskiptamenn og ákæruvaldið hafi þar í sameiningu átt hlut að máli og við hafi tekið 15 ára barátta. Segir Jón Ásgeir að í upphafi hafi hann haft trú á að Baugsmálið yrði rannsakað til að komast að niðurstöðu, sekt eða sýknu. Niðurstaðan hafi þó verið önnur að hans mati.
„Maður fór að taka eftir því að það væri verið að rannsaka málið til sektar. Ákæruvaldið vann bara þannig,“ sagði Jón Ásgeir og bætti við:
„Það virðist vera þannig að þegar menn eru búnir að taka þá ákvörðun, þá eru þeir búnir að gera upp sinn hug. Þeir eru ekki stærri menn enn það að að geta ekki tekið því að þurfa að hætta við mál sem hafa hafist með húsleitum. Þetta var high profile mál, ekki bara hérna á Íslandi, heldur erlendis líka. Við urðum fyrir miklum skaða og urðum taka til varna og útskýra málið á erlendri grundu. Það tók á.“
Upplifun Jóns Ásgeirs var sú að verið væri að beita hann ofbeldi á meðan málið var í rannsókn.
„Þessir menn höfðu ótrúleg völd og geta farið í húsleitir. Þeir geta hlerað símann þinn. Þú ert alltaf að horfa aftur fyrir þig og væntir þess að það sé ráðist inn á heimili þitt eða fyrirtæki eða hvar sem er. Þetta var gert við okkur. Þetta er ekki þægilegur tími,“ segir Jón Ásgeir.
Hann segir að leikurinn hafi aðeins jafnast þegar málin komu fyrir dóm. Þá var loks hægt að taka til varna.
„Það gerir sér enginn grein fyrir því að þú ert að glíma við valdið. Glíma við kerfið. Æðstavaldið. Þú ert smákall og það er alveg sama hversu góða lögfræðinga þú ræður í vinnu, þá áttu lítinn séns að vera jafnoki kerfisins.“
Þá spurði Sigmundur Ernir hvort rekja mætti ákvarðanir yfirvalda til stjórnmála.
„Auðvitað var pólitík í þessu,“ svaraði Jón Ásgeir. „Það bjó að baki ákveðin kergja sem byrjaði á Bónusárunum. Við förum að takast á við aðila sem eru innstu koppur í búri í Sjálfstæðisflokknum, svokallað heildsalaveldi sem að lenti í vandræðum og menn komust ekki upp með okur sem hafði staðið yfir um langt skeið. Ákveðnir pólitískir aðilar litu svo á að við værum að spila án þess að tala við þá. Það hefur sést annars staðar að þeir sem eru að byggja upp viðskiptaveldi og biðja ekki um leyfi frá pólitíkusum, þeir lenda oft í vandræðum, að þessu afli er beint gegn þeim.“
Aðspurður hvort hann hafi fundið fyrir óvild Davíðs Oddssonar þáverandi formanns Sjálfstæðisflokksins svaraði Jón Ásgeir:
„Ef maður rifjar upp söguna þá er það nokkuð klárt. Hann kenndi okkur um verðbólguna í kringum aldamótin og svo trylltist allt þegar við komum að Fréttablaðinu,“ svaraði Jón Ásgeir og bætti við: „Menn litu þannig á það að við værum að ganga erinda miðjuafla í samfélaginu sem ætluðu að hrifsa völdin af íhaldinu. Menn voru einbeittir í því að búa til samsæriskenningar og þar var Valhallarfólkið mjög duglegt.“
Þátturinn Mannamál er endursýndur á morgun.