„þú ert sætastur [...] fallegi vinur minn“ – líklega lent í vítahring

Í hvert sinn sem stúlka á aldrinum 20-50 ára setur inn mynd af sér á samfélagsmiðil keppast vinkonurnar við að hæla útlitinu. „Fallegust“, „sæta mín“ og „sæta, sæta“ sést gjarnan við þessi tilefni. Þetta er hið besta mál og sprottið af velvilja einum saman.

Þetta segir hinn vinsæli pistlahöfundur Fréttablaðsins Haukur Örn Birgisson í bakþanka blaðsins í dag. Kveðst Haukur hafa gert óvísindalega rannsókn á samfélagsmiðlum og er niðurstaðan að konum sé mjög umhugað um útlit viðkvenna sinna en minna beri á slíku hjá karlkyninu. Veltir Haukur upp þeirri spurningu hvort hrósið og fókusinn á fegurðina eigi þátt í versnandi sjálfsmynd kvenna.

Haukur segir að það hafi vakið athygli hans að karlmenn hrósi vinum sínum ekki með sama hætti.

„Hvorki gagnvart vinum sínum né vinkonum. „Þú ert sætastur“ eða „fallegi vinur minn“ eru athugasemdir sem ég hef aldrei séð á Facebook-veggjum vina minna og eru þeir þó langt frá því að vera allir ljótir. Yfirlýsingin „flottur!“ er eins langt og nokkur gaur er tilbúinn að ganga í þessum efnum.“

Haukur bendir á að reglulega megi lesa að líkamsmynd stúlkna fari versnandi og mikilvægt sé að berjast gegn því. Haukur segir:

„Á sama tíma og fullyrt er að útlit kvenna eigi ekki að skipta máli keppast konur við að hrósa hver annarri fyrir útlitið. Af hverju er það? Þótt um hrós sé að ræða, getur verið að fókusinn á fegurðina eigi sinn þátt í versnandi sjálfsmynd?“ spyr Haukur og bætir við að lokum:

„Og hvað gerist þegar hrósin eru ekki nógu mörg eða þau hætta að berast? Það kann að vera óþægilegt að horfast í augu við það en líklegast erum við lent í vítahring.“