Þú ert 220 dollara virði

Miklar sveiflur hafa verið á verði hlutabréfa í Facebook undanfarna viku. Stjórnendur fyrirtækisins hafa þurft að takast á við ýmis vandræði undanfarin misseri, misbeiting miðilsins í kosningum, grunur um falskar fréttir sem dreift er á Facebook í þeim tilgangi að koma öfgaöflum að völdum víða í heiminum auk þess sem Evrópuríki hafa tekið upp strangari persónuverndarlöggjöf sem veldur fyrirtækinu ýmsum ama. Þar að auki má spyrja sig hvort miðillinn geti yfirhöfuð fjölgað notendum sínum, enda eru allir og amma hans á Facebook.

Staðan nú fyrir helgina var sú að Facebook er metið á 505 milljarða dollara. Verðmæti miðilsins liggja að lang stærstum hluta í notendunum. Notendur miðilsins eru 2,2 milljarðar. Það má má með einfaldri stærðfræði reikna það út að hver notandi sé um það bil 230 dollara virði. Það er að segja að þú, lesandi góður, ef þú ert notandi ert um það bil tuttugu og fimmþúsundkall í augum Zuckerbergs.

Sé litið á aðra samskiptamiðla með sömu augum, þá er hver Snapchatnotandi metinn á sirka 85 dali, Twitternotandinn fæst á 79 dali. Instagram, sem er í eigu Facebook, er á mikilli siglingu. Miðillinn bætir við sig hundruðum þúsunda nýrra notenda á degi hverjum og nálgast miðillinn milljarð virkra notenda. Talið er að verðmæti Instagram sem vörumerkis sé í kringum 100 milljarða dala, sem er á pari við fyrirtæki á borð við Goldman Sachs og Nike.