Eitt er ljóst nú þegar úrslit kosninganna liggja fyrir og það er að kosningasigur VG blátt áfram gufaði upp. Varð ekki að neinu. VG bættu aðeins við sig einu prósentustigi.
VG komust í gegnum kosningarnar án þess að minnast á stóru mál þessara kosninga og þar með ástæður kosninganna. Því fór sem fór.
Nú renna upp tímar mikillar ólgu innan VG. Ólga innan VG - rétt eins og innan Alþýðubandalagsins forðum - er ávallt merki um sannar ástríður.
Oddviti VG er strax byrjaður að gefa í skyn að ábyrgð afleiðinganna hvíli ekki á honum; heldur hinum flautaþyrlunum í VG sem hann reyndi að hjálpa.
Að fást við stjórnmál innan VG er að klappa harðan stein sem seint vinnst.