Þróunarsamvinna: stofnunin lögð niður

Stjórnarmeirihlutinn á Alþingi lagði niður Þórunarsamnvinnustofnun Íslands í dag, en atkvæðagreiðsla um málið fór fram undir hádegi þar stjórnarliðar voru á græna takkanum gegn þeim rauða hjá minnihluta þingsins.

Þar með er ljós að Þróunarsamvinnustofnunin fer undir utanríkisráðuneytið, en utanríkisráðherra hefur sagt að með breytingunni verði enn betur gert í þróunarsamvinnu en nú sé gert.
 

Tillaga minnihluta utanríkismálanefndar var felld en þar var lagt til að Þróunarsamvinnustofnun Íslands yrði ráðuneytisstofnun sem starfrækt væri sem hluti ráðuneytisins og starfsmenn hennar væru undanþegnir flutningsskyldu.

Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, sagðist dapur yfir niðurstöðunni og sagði núverandi utanríkisráðherra kjósa ófrið þegar friður væri í boð. Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, sagð afrekaskrá ríkisstjórnarinnar í þróunarsamvinnu dapurlega og Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar, sagði niðurstöðuna metnaðarleysi stjórnvalda í málefnum þróunarsamvinnu.